Fimmtudaginn 16 janúar 2020 næstkomandi mun Mælibúnaður boða til morgunverðarfundar. Tilefni fundarins er að kynna til leiks nýja línu frá Campbell Scientific sem kallast GRANITE sem er harðgerður háhraða mælibúnaður sem býður uppá nýja og spennandi möguleika við mælingar og eftirlit. Búnaðurinn er einfaldur í notkun og uppsetningu og bíður uppá mun meiri hraða heldur við höfum séð hingað til.
Búnaður verður til sýnis á staðnum og boðið verður upp á sýnikennslu á búnaði.
Sérfræðingur frá Campbell Scientific verður á staðnum.
Dagsetning: fimmtudagur 16 Janúar 2020
Tími: 09-10:00
Staðsetning: Rafiðnaðarskólinn, Stórhöfða 27 1 hæð (gengið inn Grafarvogsmegin), 110 Reykjavík
Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á kaleb@maelibunadur.is eða með því að hringja í síma 661 1169
Skráningu líkur 14. janúar