WeatherHawk
Bandaríska fyrirtækið WeatherHawk hefur þróað og sett á markaðinn nýja kynslóð af sjálfvirkum veðurstöðvum. Þessar stöðvar eru með öllum mælitækjum innbyggðum, og eru tilbúnar til notkunnar. Þær eru mjög hentugar, þar sem þörf er á áreiðanlegum veðurmælingum með litlum kostnaði, og hafa notið mikilla vinsælda.
WeatherHawk hentar mjög vel fyrir:
* gólfvelli
* ferðamannastaði
* skóla
* hafnir
* skíðastaði og víðar.
WeatherHawk er sérstaklega hentug þegar setja þarf upp í stuttan tíma veðursthuganir, eins og vegna íþróttamóta, gróðurfarsrannsókna og umhverfisrannsókna. Stöðvarnar eru einnig notaðar af bændum, sem vilja fylgjast með ástandi á landi sínu.
WeatherHawk er vel búin mælitækjum, sem eru:
* Lofthiti
* Loftraki
* Loftþrýstingur
* Vindátt
* Vindhraði
* Úrkoma
* Sólskin
* Vindkæling (er útreiknuð)
Innbyggt í WeatherHawk veðurstöðina er gagnaskráningartæki með nægu minni til að geyma veðurmælingar í 2 vikur og rafhlaða sem fær hleðslu frá sólarrafhlöðu, vindrafstöð eða frá netspennu. WeatherHawk er með samskiptabúnaði fyrir tengingu við RS232 tengi í tölvu, við símamódem, við GSM síma, og við 2,4GHz radíómódem.
WeatherHawk fylgir vandaður hugbúnaður fyrir PC-tölvu, sem sækir mælingar og geymir í skrá, og birtir veðrið á línuritum. Meðal aukahluta er þrífótur, hælar og stög, sólarrafhlöður, símamódem, GSM módem og 2,4GHz radíómódem. Þessi radíómódem hafa allt að 500m langdrægi eða meira, allt eftir því hvaða loftnet er sett við.
Verkfræðistofan Vista býður þjónustu við að sækja veðurmælingar sjálfvirkt í WeatherHawk veðurstöð gegnum símamódem og birta á vefsíðu. Gögn eru ýmist uppfærð á hverri nóttu, eða uppfærð á allt að 10min fresti þannig að fylgjast megi með veðri í rauntíma. Þessi síðari kostur getur hentað gólfvöllum, höfnum, skíðasvæðum, ferðamannastöðum og öllum þeim sem vilja veita aðgang að raunveðri. Að auki má bæta við vefmyndavélum sem flytja myndir af umhverfi og skýjafari inn á vefsíðu.

